Sumarið er tíminn

Skrifað þann: 09/06/09, 11:10 | Höfundur Marta Dís Stefánsdóttir

Góðan dag kæru graffarar Nú er sumarið að byrja og einnig er allt að gerast í graffitíheiminum Það sem verkefnið áformar að gera í sumar er eftirfarandi Listasíning Námskeið Verðum á fullu á 17. júní og fleira og fleira Munið að ganga vel um ekki spreyja þar sem ekki á að spreyja og sína tilitssemi þegar fólk er að ganga framhjá. Verið í bandi ef þið hafið áhuga á að vera með einhverjum að þeim viðburðum sem eru í bígerð. Kveðja Marta Dís Sími 664-5759 martadis@hafnarfjordur.is

 

Fundur

Skrifað þann: 23/01/09, 2:01 | Höfundur Marta Dís Stefánsdóttir

Sæl

Þriðjudaginn 27. janúar kl 14:00 ætlum við að hyttast á smá umræðu fundi þar sem þið getið komið með ykkar hrós, kvartanir, beiðnir eða bara hvað sem er. Fundurinn mun vera haldinn í félagsmiðstöðinni Hrauninu sem staðsett er í Víðistaða skóla.

Þriðjudagurinn

27. Janúar

KL 14:00

Hrauninu Víðistaðaskóla

 

Úfff

Skrifað þann: 19/01/09, 3:17 | Höfundur Marta Dís Stefánsdóttir

Jæja mín er að taka sig á og skellti inn nýjum myndum þyrfti nú að fara og taka nýjar því þær eru alveg gífulega slæmar en allt er betra en ekkert svo njótið vel.

Kveðja Marta Dís

Bara svona smá af þessu:)

 

Afsakið

Skrifað þann: 12/01/09, 11:48 | Höfundur Marta Dís Stefánsdóttir

Sælir kæru graffitilimstamenn

Ég vildi bara biðjast afsökunar á því hvað lítið hefur verið að gerast á síðunni og hversu treglega það hefur gengið að mála göngin en svoleiðist er málum háttað að ég var frá allan desember vegna veikinda og er að koma til baka og mun fara í þessi mál þegar veður leifir:)

Kveðja Marta Dís

 

Mála

Skrifað þann: 11/11/08, 10:22 | Höfundur Marta Dís Stefánsdóttir

Vildi bara láta ykkur vita að ég var að grunna Essó og Holtsgöngin í dag. Svo go nuts og skellið upp verkum.

Restin af göngunum verða síðan grunnuð innan skams:)

Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hversvegna ég hef málað yfir verkin ykkar kíkið á linkinn sem ég var að skella inn og heytir Hvað ég mála yfir....

Svo endilega verið í sambandi ef það er eitthvað sem ykkur liggur á hjarta hvort sem það er jákvætt eða neikvætt í sambandi við verkefnið.
graffiti@hafnarfjordur.is
sími: 664-5759

Kveðja Marta Dís

 

« Nýrri fréttir
Eldri fréttir >>