Frístundaheimili
Frístundaheimili er í hverjum grunnskóla og heyra þar undir. Frístundaheimilin eru fyrir börn í 1. - 3. bekk.
Verkefnisstjóri frístundaheimila starfar hins vegar með æskulýðs- og tómstundadeild og sér um framkvæmd sértækra námskeiða sem boðið er upp á í öllum frístundaheimilum. Um ýmis námskeið er að ræða s.s. yoga, fimleika, skák, skáta, íþróttanámskeið og margt fleira.
Ekki er endilega um sömu námskeið að ræða á hverjum stað en starfsmenn hvers staðar hafa val um hvaða námskeið verða í boði. Skráning á námskeiðin fer fram í hverjum skóla og er í umsjá hvers frístundaheimilis.
Eftirfarandi námskeið eru í boði haustönn 2009: Jóga fyrir börn, Karate frá Haukum, Gömlu góðu leikirnir, Heimspeki fyrir börn, Myndlist og málun, Blokkflautunámskeið og Íþróttaskóli FH.