Sumarstarf

Æskulýðs- og tómstundadeild heldur utan um eftirfarandi sumarstarf bæjarins á sumrin:
Sími sumarstarfs: 565 1899, netfang:
vinnuskoli@hafnarfjordur.is


Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Í Vinnuskóla Hafnarfjarðar er unglingum 14-16 ára, boðin vinna í júní og júlí. Margvíslegir hópar eru starfandi s.s. sláttuhópar, fjölmiðlahópur og leiklistarhópur.

Skólagarðar
Skólagarðarnir eru staðsettir á fjórum stöðum í bænum og eru fyrir 8-12 ára. Öldruðum er einnig boðnir nokkrir ræktunarreitir til afnotar. Uppistaðan í ræktuninni er kartöflur, kálmeti og kryddjurtir. Skólagarðarnir starfa frá byrjun júní til ágúst loka.

Íþrótta- og leikjanámskeið
Íþrótta- og leikjanámskeið eru byggð upp sem hálfsdagsnámskeið fyrir 7-9 ára börn, þó einnig sé hægt að hafa barnið allan daginn. Námskeiðin fara fram við alla grunnskóla bæjarins.

Leikjanámskeið Öldunnar
Hér er um sérhæft námskeið að ræða og eru nokkur pláss fyrir börn með sérþarfir. Hér er um vandað heilsdagsnámskeið að ræða og er hvert námskeið 2 vikur.

Tómstund
Tómstund er tómstundagaman fyrir 12-13 ára. Í boði eru margvísleg námskeið s.s. graff, förðun, tölvu og fleira. Börnin borga eitt gjald yfir sumarið og geta síðan skráð sig í þau námskeið sem þau vilja.

Competo - jafningjafræðsla

Fjölmiðlahópur Vinnuskólans
Frumraun 2009


 

Dagatal

Könnun

  • Ætlar þú að taka þátt í sumarstarfi ÍTH ?

    Nei
    Kannski

  •  

Umsókn um sumarstörf 2010

ÍTH blaðið

 
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar | Mjósundi 10, 220 Hfj | s: 585-5750 | ith@hafnarfjordur.is | www.ith.is