Mikil ánægja var með tónleikanna enda heppnuðust þeir virkilega vel í alla staði. Eftir tónleikana fóru tónleikagestir heim á leið, hásir, sveittir og sáttir.
Hin árlega tískusýning félagsmiðstöðvarinnar Vitans í Lækjarskóla, Gizmó, fór fram fimmtudaginn 3. desember sl. Sýningin var glæsileg að vanda og var þátttaka alveg frábær en hvorki fleiri né færri en 60 unglingar spreyttu sig í ár.
Gizmó-nefndin hefur sjaldan verið jafn stór og í ár og voru um 15 stúlkur í henni. Stúlkurnar stóðu sig eins og hetjur, undirbúningurinn mikill enda búið að vera að skipuleggja síðan skólaárið hófst. Mikil og góð stemmning var á sýningunni en 150 áhorfendur fylltu salinn.
Að loknu frábæru kvöldi héldu þreyttir og ánægðir keppendur og skipuleggjendur heim á leið - sumir með glæsileg verðlaun í farteskinu.
Verðlaunahafar voru eftirfarandi:
Drottning: Gunela Zune
Kóngur: Sindri Snær Þórsson
Bros: Valgerður Fjölnisdóttir
Hár: Dóra Sóldís Ásmundardóttir
Rass: Ólafur Alexander Ólafsson
Gella: Anna Maia Kaczor
Gæji: Aleksander Mojsa
Kroppur: Húbert Ó. Huntington Williams
Framkoma: Anna Karen Gunnarsdóttir
Krútt: Sigfinnur Helgi Gunnarsson
Hin árlega Fiesta var haldin fimmtudaginn 5. nóv. og er óhætt að segja að hátíðin hafi verið frábær. Fiestan er samstarfsverkefni Vitans í Lækjarskóla og Versins í Hvaleyrarskóla og hefur hún fest sig í sessi sem helsti viðburður skólanna undanfarin ár. Uppselt var á hátíðina en á fimmta hundrað ungmenna mættu og skemmtu sér konunglega.
Miðvikudaginn 28. október fór fram fótboltamót ÍTH á gervigrasvellinum í Kaplakrika. Á mótið mættu unglingar frá öllum félagsmiðstöðum/grunnskólum til að taka þátt. Um 200 unglingar mættu á svæðið, annað hvort sem leikmenn eða stuðningsmenn. Þrátt fyrir að kalt hafi verið í veðri var loftið rafmagnað af spennu áður en flautað var til leiks.
Mótið var hörkuspennandi og eftir skemmtilega riðlakeppni léku til úrslita lið Ássins og Setursins. Í lok venjulegs leiktíma var staðan 2-2 og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Í henni tryggði Setrið sér glæsilegan sigur en lið Ássins fór þó ekki heim tómhent því stuðningsmannaverðlaunin féllu því í skaut.
Umgjörð mótsins var öll hin glæsilegasta en dómari úrslitaleiksins var enginn annar en stórdómarinn Kristinn Jakobsson. Honum til halds og traust voru svo stjörnuleikmennirnir Þórhallur Dan (Haukum) og Tommy Nielsen (FH). Það kom svo í hlut Margrétar Gauju Magnúsdóttur formanns ÍTH að afhenda Setrinu verðlaunin fyrir 1. sætið.
Óhætt er að segja að mótið hafi heppnast með eindæmum vel. Fyrir utan glæsilega umgjörð, settu öflugir stuðningsmenn mark sitt á keppnina sé ekki talað um þá fjölmörgu frábæru fótboltamenn liðanna sem léku listir sínar fyrir áhorfendur. Frábær keppni í alla staði!

Um útivistarreglurnar
Í dag eru útivistarreglurnar lög og gilda sömu reglur um land allt.
Á veturna eiga 12 ára gömul börn og yngri lítið erindi út á kvöldin, útivistartíma lýkur kl. 20:00 og foreldrar og aðrir sem tengjast börnum þurfa að standa saman vörð um að halda því. Sama gildir með 16 ára og yngri en útivistartíma þeirra lýkur kl. 22:00. Foreldrar hafa fullan rétt á að stytta þennan útivistartíma og algengt er foreldrar 13 – 14 ára barna geri slíkt auk foreldra yngri barna.
| 1 2 3 (4) | 
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar | Mjósundi 10, 220 Hfj | s: 585-5750 | ith@hafnarfjordur.is | www.ith.is