Glatt var á hjalla á Öskudaginn og mátti sjá ýmsar kynjaverur á sveimi. Öskudagsskemmtun var haldin á Thorsplani þar sem slegið var úr tunnum, tekið þátt í öskupokakeppni og krakkar skemmtu á sviðinu með ýmsum uppákomum. Ingó Veðurguð tók svo lagið og tóku krakkarnir undir af mikilli innlifun. Sjá myndir í myndir/öskudagur.


Í dag, miðvikudaginn 17. febrúar, fer fram fyrsta viðureign vetrarins í Spurningakeppni ÍTH og grunnskólanna - „Veistu svarið“ - þegar lið Lækjarskóla sækir Hraunvallaskóla heim. Bæði þessi lið duttu út í 8 liða úrslitum í fyrra og er því ljóst að liðin munu selja sig dýrt í keppninni nú. Líkt og í fyrra er hinn sigursæli Gettu betur maður, Hjalti Snær Ægisson, spyrill og höfundur spurninga.
Lið Hraunvallaskóla:
Magnús Þór Gunnarsson (10. bekk)
Viktor Ingi Guðmundsson (10. bekk)
Þórdís Kristinsdóttir (9. bekk)
Bjartur Lúkas Grétarsson (8. bekk) 1. varamaður
Gísli Ingólfsson (10. bekk) 2. varamaður
Lið Lækjarskóla:
Kiljan Vincent Paoli (10. bekk)
Hjalti Hrafn Sigurðarson (10. bekk)
Stefán Páll Ragnarsson (10. bekk)

Lið Hraunvallaskóla ásamt varamönnum
Miðvikudaginn, 17. febrúar, á hinum skemmtilega Öskudegi, verður mikið fjör á Thorsplani frá kl. 13.00 - 14.30 og eru allir krakkar og foreldrar boðnir velkomnir til að taka þátt í fjörinu.
Dagskráin hefst á því að slegið verður úr tunnum. Tunnurnar er fjórar og er aldursskipt á tunnurnar, 0-5 ára, 6-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára.
Ingó Veðurguð mætir og verður skemmilegur eins og alltaf.
Öskupokakeppnin verður á sínum stað og er um að gera að sauma flotta öskupoka og taka þátt. Pokunum er skilað á sviðið fyrir kl. 14.00 og muna að setja nafnið ykkar ofan í pokana. Viðurkenningar verða veittar fyrir bestu pokana.
Rauði Krossinn býður upp á heitt kakó og vöfflur í sal Rauða Krossins v/Thorsplan.
Grunnskólahátíð ÍTH verður haldin í dag fimmtudag í Íþróttahúsinu v/Strandgötu.
Ballið hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 23:30. Það eru Ingó og Veðurguðirnir sem halda uppi stemningunni ásamt skífuþeytir.
Leiksýningarnar verða í íþróttahúsinu í Víðistaðaskóla og hefjast kl. 14:30.

| 1 2 (3) 4 | 
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar | Mjósundi 10, 220 Hfj | s: 585-5750 | ith@hafnarfjordur.is | www.ith.is