Setbergsskóli sigraði Veistu svarið

Á mánudagskvöldið sigraði Setbergsskóli lið Álftanesskóla í úrslitaviðureign Spurningakeppni ÍTH og grunnskólanna, Veistu svarið. Keppnin fór fram í hátíðarsal Flensborgarskólans líkt og fyrir ári síðan og var salurinn þétt setinn af fjölmörgum stuðningsmönnum beggja liða sem mættu til að hvetja sitt lið. Setbergsskóli náði fljótlega forskoti og leiddi keppnina með 5 stigum eftir hraðaspurningar en í stöðunni 25-17 átti Álftanesskóli ótrúlegan endasprett, jafnaði 25-25 og tryggði sér bráðabana. Þar kom þekking Setbergsmanna á málefnum Madonnu sér vel en viðureignin fór 27-26 eftir dramatískar lokamínútur.

 

Bæði lið stóðu sig með mikilli prýði og var alveg ótrúlegt að sjá hversu flóknar og erfiðar spurningar liðinunum tókst að leysa á meðan fullorðna fólkið út í sal klóraði sér í höfðinu yfir sömu spurningum. Sú nýjung átti sér stað í úrslitakeppninni að báðir skólar buðu upp á stórskemmtileg skemmtiatriði til að brjóta upp keppnina. Hópur söngdíva úr Álftanesskóla undir stjórn hafnfirðingsins Guðnýjar Árnýjar Karlsdóttur sungu Bítlaslagarann Let it be og klassískt tónverk var spilað af nemenda úr Setbergsskóla af mikilli list.

 

Bæði lið fengu bókaverðlaun í sinn hlut fyrir árangur sinn í keppninni og það kom svo í hlut Margrétar Gauju Magnúsdóttur að afhenda Setbergspiltum Vitann, verðlaunagrip keppninnar.

 

Keppnislið Setbergsskóla skipuðu þeir Úlfur Þór Andrason, Birgir Örn Höskuldsson og Brynjar Geir Sigurðsson.

 

 

 

 

fimmtudagur, 15. apríl 2010 |  Sigurgeir Ægisson

Handboltamót og borðtennismót í páskavikunni

Handboltamót ÍTH fór fram í vikunni fyrir páska og var það haldið í íþróttahúsinu Kaplakrika. Þetta var í fyrsta sinn sem þetta mót fór fram og tókst sú tilraun að halda þetta í páskafríinu vel. Sex skólar/félagsmiðstöðvar sendu lið til keppni. Spilað var á tveimur völlum í riðlakeppninni en að henni kepptu lið Vitans í Lækjarskóla og Setursins Setbergsskóla til úrslita á aðalvelli hússins. Óhætt er að segja að úrslitaleikurinn hafi verið æsispennandi og tryggði Vitinn sér framlengingu með marki úr hægra horninu um leið og leiktíminn rann út. Í framlengingunni var Vitinn sterkari og sigraði. Keppnin var mjög skemmtileg í alla staði og var hart tekist á í leikjunum þó svo að ávallt hafi verið stutt í gamansemina.

 

Samhliða handboltamótinu fór fram Hafnarfjarðarmeistaramót ÍTH í borðtennis. Keppt var í liðaflokki og var öllum félagsmiðstöðvum bæjarins boðin þátttaka. Mótið var í umsjá meðlima í borðtennisdeild BH og gaf www.pingpong.is öll verðlaun. Lið frá Setrinu Setbergsskóla urðu í tveim efstu sætunum og voru þeir Jón Guðnason, Bergþór Þorvaldsson og Brynjar Geir Sigurðsson í sigurliðinu.

Mynd: Sigurvegarar handboltamótsins, lið Vitans/Lækjarskóla

 

fimmtudagur, 15. apríl 2010 |  Sigurgeir Ægisson

Sumarstarf ÍTH - starfsfólk

ÍTH og Garðyrkjustjórinn í Hafnarfirði óska eftir að ráða starfsfólk til sumarstarfa.

 

Eftirfarandi störf eru í boði:

 

Flokksstjórar í Vinnuskóla

Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeið

Leiðbeinendur í skólagörðum

Leiðbeinendur á gæsluvöllum

 

Lágmarksaldur umsækjenda um þessi störf er 21 ár (fæddir 1989)

 

Í fegrunarflokki (blómaflokki)

Í sláttuflokki

Í viðhaldsflokki

 

Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum

Aðstoðarleiðbeinendur í skólagörðum

Aðstoðarleiðbeinendur á gæsluvöllum

 

Aldur umsækjenda um þessi störf er 17 – 20 ára (fæddir 1990 – 1993).

 

Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar 15. – 31. mars frá kl. 12.00 – 16.00, í húsi Framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar, Norðuhellu 2 frá kl. kl. 7.30 og 16.30 alla virka daga nema föstudaga til kl. 15.00, í Þjónustuverinu að Strandgötu 6, á skrifstofu ÍTH og skrifstofu forvarnafulltrúa í Gamla bókasafninu.

 

Umsóknareyðublöð má nálgast á öllum ofangreindum stöðum og á hafnarfjordur.is.

 

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 565-1899. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið ragna@hafnarfjordur.is. og í síma 585-5670 og  boddi@hafnarfjordur.is.

 

Umsækjendur eru hvattir til að sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is

mánudagur, 22. mars 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

Hraunrokk hljómsveitarkeppni

þriðjudagur, 16. mars 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

Sumarstörf ÍTH og garðyrkjustjóra

ÍTH og Garðyrkjustjórinn í Hafnarfirði óska eftir að ráða starfsfólk til sumarstarfa.

 

Eftirfarandi störf eru í boði:

 

Flokksstjórar í Vinnuskóla

Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeið

Leiðbeinendur í skólagörðum

Leiðbeinendur á gæsluvöllum

 

Lágmarksaldur umsækjenda um þessi störf er 21 ár (fæddir 1989)

 

Í fegrunarflokki (blómaflokki)

Í sláttuflokki

Í viðhaldsflokki

 

Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum

Aðstoðarleiðbeinendur í skólagörðum

Aðstoðarleiðbeinendur á gæsluvöllum

 

Aldur umsækjenda um þessi störf er 17 – 20 ára (fæddir 1990 – 1993).

 

Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar 15. – 31. mars frá kl. 12.00 – 16.00, í húsi Framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar, Norðuhellu 2 frá kl. kl. 7.30 og 16.30 alla virka daga nema föstudaga til kl. 15.00, í Þjónustuverinu að Strandgötu 6, á skrifstofu ÍTH og skrifstofu forvarnafulltrúa í Gamla bókasafninu.

 

Umsóknareyðublöð má nálgast á öllum ofangreindum stöðum og á hafnarfjordur.is.

 

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 565-1899. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið ragna@hafnarfjordur.is. og í síma 585-5670 og  boddi@hafnarfjordur.is.

 

Umsækjendur eru hvattir til að sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is

 

föstudagur, 12. mars 2010 |  Sigurgeir Ægisson
 | 1 (2) 3 4  | 

Dagatal

Könnun

  • Ætlar þú að taka þátt í sumarstarfi ÍTH ?

    Nei
    Kannski

  •  

Umsókn um sumarstörf 2010

ÍTH blaðið

 
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar | Mjósundi 10, 220 Hfj | s: 585-5750 | ith@hafnarfjordur.is | www.ith.is