Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar 17. júlí

Hvaleyrarvatn og nágrenni
Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar laugardaginn 17. júlí

Skógræktarfélag Hafnarfjarðar v/Kaldárselsveg
kl. 14.00          Hugvekja í bænalundi Höfða
kl. 14.30          Skógarganga að lokinni hugvekju
kl. 14.30-16     Skógarhappdrætti fyrir yngstu kynslóðina.
Dregið úr réttum lausnum kl. 16.30.
kl. 16-17.00     Kaffiveitingar í Selinu, bækistöðvum félagsins.

Hestamiðstöð Íshesta
Kl. 15-16         Börnin á hestbak, Íshestar og Sörli verða með hesta í gerðinu
við Hestamiðstöð Íshesta og verður teymt undir börnum.

Hvaleyrarvatn grillið
Kl. 14.30-16.30 Hægt er að grilla við bæjarskálann. Komið með gott á grillið.

Nánari upplýsingar hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í síma 555 6455.

föstudagur, 9. júlí 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

Hafnarfjarðarmeistaramót í dorgveiði

Þriðjudaginn 22. júní standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára.

Í ein 20 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og í fyrra tóku rúmlega 300 börn þátt. Sigurvegarinn veiddi um tíu fiska og vó þyngsti fiskur keppninnar um 500 gr. Þessi keppni hefur þótt takast vel og verið ungum keppendum og sumarstarfi Vinnuskólans til mikils sóma. Þeir sem eiga ekki veiðarfæri geta fengið þau lánuð á keppnisstað en nóg verður til af veiðarfærum. Einnig verður hægt að fá beitu og leiðbeiningar frá starfsmönnum. Verðlaun verða veitt fyrir stærsta fiskinn, þeim sem veiða flestu fiskana og þeim sem veiðir svokallaðan furðufisk. Styrktaraðili keppninnar er Veiðibúðin við lækinn sem gefur verðlaun, veiðarfæri og góð ráð.

Leiðbeinendur íþrótta- og leikjanámskeiðanna verða með öfluga gæslu auk þess sem Siglingaklúbburinn Þytur verður með björgunarbát á svæðinu. Keppnin hefst um kl. 13:30 og lýkur um kl. 15:00. Allir krakkar á aldrinum sex til tólf ára eru velkomnir og hvattir til að taka þátt.

Upplýsingar gefur Geir Bjarnason í síma 565 5100 og 664 5754, netfang: geir@hafnarfjordur.is.

  

mánudagur, 14. júní 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

SÖLUTJÖLD Á 17. JÚNÍ

SÖLUTJÖLD
Á 17. JÚNÍ

Þeir aðilar sem áhuga hafa á að hafa sölutjöld á
17. júní geta sótt um söluleyfi á skrifstofu
æskulýðs- og tómstundamála, Mjósundi 10,
á netfangið: ith@hafnarfjordur.is
Söluleyfum er ekki úthlutað til einstaklinga.
Leyfið gildir bæði fyrir sölu á dagskemmtun og
kvöldskemmtun og þarf að taka fram í umsókn hvort um ræðir.
Umsóknum ber að skila eigi síðar en 8. júní kl. 11.00 í Mjósundi 10,
en þá verður dregið um staðsetningu sölutjalda
og er aðilum boðið að vera viðstaddir.

Þjóðhátíðarnefnd

mánudagur, 7. júní 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

Footloose sýning í Víðistaðaskóla

 
10. bekkur í Víðistaðaskóla vinnur nú hörðum höndum við túlkun á stórsöngleiknum Footloose. Markmiðið með söngleiknum er að safna peningum sem að fara í ferðasjóð útskriftarhópsins í vor en stefnt er að því að halda til Skagafjarðar. Áður var stefnt að því að fara í hina árlegu ferð til Þórsmerkur en vegna náttúruafla var ákveðið að breyta áfangastaðnum.  Leikararnir sem eru 30 talsins, hafa verið að undirbúa þessa sýningu í allan vetur en hugmyndin spratt út frá vinsældum söngleikjarins um Bugsy Malone fyrir um ári en sá söngleikur var einnig leikinn og túlkaður af 10. bekk í Víðistaðaskóla. Allur árgangurinn er virkjaður inn í þennan atburð og hver og einn einstaklingur hefur sitt hlutverk svo sem miðasala, sviðsmaður, stílisti, starfsmaður á sýningadögum og annað.
Leik og söngleikurinn Footloose verður sýndur næstu helgi  7. – 9. maí í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Sýningartímar eru eftirfarandi:
 
Sýning  7.maí kl. 20:00 – Uppselt
Sýning  8.maí kl. 14:00
Sýning  8.maí kl. 17:00
Sýning  9.maí kl. 14:00
Sýning  9.maí kl. 17:00

Miðaverð er 500 kr fyrir börn og 1000 kr fyrir fullorðna.
Miðasala fer fram í Hrauninu alla daga fram að sýningu. Hraunið er staðsett í kjallara íþróttahúss Víðistaðaskóla. Ef  þið hafið áhuga á að kaupa/panta miða getið þið sent pöntun á johanna.f@hafnarfjordur.is eða hringt í 595 5819.

Kær kveðja
F.H. 10.bekkinga Víðistaðaskóla
Gauti Jónasson formaður nemendaráðs

fimmtudagur, 6. maí 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir

Gaman saman

Fimmtudaginn 29. apríl munu grunnskólanemar Hafnarfjarðar gera sér glaðan dag, í verkefni sem kallað er Gaman Saman.

Markmið verkefnisins er að upplýsa og fræða krakkana um mikilvægi þess að láta sér líða vel, í líkama og sál. Hugmyndin að verkefninu er komin frá nemendum Víðistaðaskóla í samvinnu við félagsmiðstöðina Hraunið, en þeim fannst umræðan um vellíðan barna og unglinga löngu orðin tímabær í samfélaginu. Hugmyndin var þá útfærð og kynnt fyrir hinum félagsmiðstöðvum bæjarins, sem tóku vel í verkefnið og úr varð stórviðburðurinn Gaman Saman. Flestir skólarnir í samvinnu við sína félagsmiðstöð verða með dagskrá yfir daginn.

Gaman Saman er tvíþætt verkefni. Um daginn munu krakkarnir taka þátt í þemaverkefnum, hlusta á fyrirlestra, fara í hópeflisleiki og gera ýmislegt fleira fróðlegt og skemmtilegt. Umræðuefnin eru meðal annars þunglyndi, kvíði, athyglisbrestur, ofvirkni, vímuefni, hugleiðsla,  jákvæðni, sjálfstraust, einelti og annað sem kann að leita á huga krakkana.

Um kvöldið tekur svo gleðin við með stórtónleikum og balli í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Fram koma; Buff, Haffi Haff, Blaz Roca, Cliff Clavin,Kristmundur Axel, Friðrik Dór, Diddi Fel, Lights on the Highway, Dj Bóbó Blazter og fleiri góðir gestir.
Dagskrá kvöldsins er opin fyrir 8.-10. bekki grunnskóla Hafnarfjarðar og stendur frá kl. 19:00 til 23:00. Miðaverð er kr. 1000 og rennur allur ágóði verkefnisins í sjóð sem styrkja mun verkefni í tengslum við bætta líðan barna og unglinga í Hafnarfirði.

Þess ber þó líka að geta að frá 16:30 til 18:30 er dagskrá fyrir 5.-7. bekki bæjarins og þar koma meðal annars fram Friðrik Dór, Dj Bóbó Blazter og fleiri. Miðaverð á barnaskemmtunina er 500 krónur.  Einnig er í boði að leggja inn á reikninginn frjáls framlög. Reikningsnúmerið er 1101 - 05 - 417101 kt. 690196 - 2719 Gaman Saman.  Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar mun hafa umsjá með sjóðnum.

Við þökkum öllum þeim sem gefa vinnu sína í þetta verkefni þar ber að nefna alla skemmtikraftana, Exton, Prentmet, Hópbíla, Svein Ómar hljóðmann , Orra ljósamann og sérfræðinga sem koma og fræða og alla hina.

Sjá auglýsingu:

þriðjudagur, 27. apríl 2010 |  Anna Kristín Bjarnadóttir
 | (1) 2 3 4  | 

Dagatal

Könnun

  • Ætlar þú að taka þátt í sumarstarfi ÍTH ?

    Nei
    Kannski

  •  

Umsókn um sumarstörf 2010

ÍTH blaðið

 
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar | Mjósundi 10, 220 Hfj | s: 585-5750 | ith@hafnarfjordur.is | www.ith.is